Héraðsdómur hefur kveðið upp dóm í máli tveggja manna sem Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu ákærði fyrir peningafals. Um er að ræða eldri mann og barnabarn hans, ungan mann, en nákvæmur aldur þeirra er ekki gefinn upp í dómnum. Mennirnir voru sakaðir um að reyna að skipta fjórum ógildum 100 dollaraseðlum yfir í annan gjaldmiðil í banka, eða leggja inn á reikning, í banka í Kópavogi sumarið 2025.
Afi og barnabarn sakaðir um peningafals og dregnir fyrir dóm