Afganarnir flúðu heimaland sitt 2021 þegar Bandaríkjaher yfirgaf Afganistan og talibanar tóku yfir. Margir í þessum hópi störfuðu með bandaríska hernum í Afganistan og flúðu landið af ótta við ofsóknir talibana. Fólkið hefur búið í búðunum í Katar og beðið þess að fá landvistarleyfi í Bandaríkjunum.
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hert mjög innflytjendalöggjöf í Bandaríkjunum í seinni forsetatíð sinni. Ríkisstjórn hans hafði lýst yfir að búðunum í Katar ætti að loka 31. mars.
Samkvæmt hópnum AfghanEvac, sem er hópur sem aðstoðar Afgana, er Bandaríkjastjórn sögð vera að skoða þann möguleika að flytja fólkið til Kongó í Afríku eða bjóða því að snúa aftur heim til Afganistan. Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hefur ekki viljað staðfesta þetta en segir að verið sé að skoða hvort fólk vilji snúa sjálfviljugt til baka til heimalandsins.
Öldungadeildarþingmaðurinn og demókratinn Tim Kaine hefur gagnrýnt þetta harðlega og sagt þessar áætlanir glórulausar. Bandaríkjamenn hafi sagt við Afganana að öryggi þeirra yrði tryggt eftir að þau hafi aðstoðað bandaríska herinn.
Yfir 190.000 Afganar hafa fengið landvistarleyfi í Bandaríkjunum eftir að Talibanar komust til valda í Afganistan. Joe Biden fyrrum Bandaríkjaforseti átti frumkvæðið að móttöku flóttamanna frá Afganistan með stuðningi nokkurra þingmanna repúblikana.
Trump stöðvaði úrvinnslu á umsóknum um landvistarleyfi Afgana eftir að Afgani sem áður starfaði með leyniþjónustu Bandaríkjanna skaut einn þjóðvarðarliða til bana og særði annan í Washington á síðasta ári.