Snjóflóðin sem féllu í Súðavík og á Flateyri fyrir þrjátíu árum eru ein þau mannskæðustu á síðustu öld. Aðeins hefur þó verið skipuð rannsóknarnefnd Alþingis um það sem féll í Súðavík, og voru niðurstöðurnar kynntar í desember.
Sóley Eiríksdóttir var ellefu ára þegar hún lenti undir flóðinu sem féll á Flateyri í október árið 1995 og var föst undir snjófarginu í níu klukkustundir.
Hún telur að enn eigi eftir að gera upp margt sem gerðist í aðdraganda flóðsins og í kjölfar þess. Ef eitthvað er hafi rannsóknin á Súðavíkurflóðinu aðeins undirstrikað mikilvægi þess að önnur slík verði gerð um snjóflóðið á Flateyri.
Í vetur sendi hún beiðni til Alþingis um að önnur rannsóknarnefnd verði skipuð. Ekki hefur borist svar frá formanni stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Í Síðdegisútvarpinu segir Sóley það sérkennilegt að fjölskyldur þeirra sem fórust í flóðunum þurfi að standa í áralöngum baráttum til að fá slíkar rannsóknir í gegn.
„Ég er alveg komin með svolítið leið á því að við séum að tala um að þetta sé viðkvæmt. Eftir þrjátíu ár ― getum við ekki bara farið að tala um þetta og horfa á þetta dálítið kalt: „Hvað getum við lært af þessu?“,“ segir Sóley og heldur áfram:
„Þú spyrð: „Af hverju eigum við að fara að rannsaka þetta?“, ég spyr: „Af hverju er ekki löngu búið að rannsaka þetta? Af hverju er ég yfirhöfuð hingað komin? Af hverju er þetta samtal að eiga sér stað?“.“
Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að ofan.