Emil Græsholm, yfirmaður hjá leyniþjónustu dönsku lögreglunnar (PET), segir þetta við dagblaðið Berlingske, en fjöldi danskra miðla hefur greint frá málinu í kvöld með vísan í dagblaðið.
Rússar eru sagðir hafa haft ákveðin fyrirtæki í sigtinu, aðallega fyrirtæki á sviði varnarmála sem kynnu að tengjast hernaðaraðstoð Dana við Úkraínu. Hugsanlega hafi þeir haft íkveikju í huga, að því er fram kemur í frétt Berlingske.
„Þetta eru svo áþreifanlegar (d. konkret) útnefningar [á fyrirtækjum] og undirbúningur að við teljum nauðsynlegt að koma þeim skilaboðum á framfæri að þetta sé ógn sem beri að taka alvarlega,“ segir Græsholm við Berlingske.
Þá er haft eftir lögreglunni í umfjöllun Berlingske að nokkur dæmi séu um að Rússar hafi reynt að fá almenna Dani til liðs við sig.
Þeir hafi haft samband við danska ríkisborgara í gegnum Telegram, tölvuleiki eða aðra samfélagsmiðla. Þar hafi þeir verið fengnir til að sinna því sem virtust „saklaus“ verkefni, eins og að taka myndir af fyrirtækjum.
Dansk industri, samtök iðnaðarins í Danmörku, segjast í yfirlýsingu líta þetta alvarlegum augum.
Nýbúinn að kalla Rússann á teppið
Ráðamenn í Danmörku hafa ekki tjáð sig opinberlega um þessar fregnir, sem bárust nú um klukkan 20 að íslenskum tíma, en Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, boðaði í dag sendiherra Rússlands þar í landi á sinn fund í dag.
Løkke sagðist ætla að ræða sjálfsprengidróna sem fundust á flugvelli í Þýskalandi í síðasta mánuði en ráðamenn í Þýskalandi sögðu í gær að Rússar bæru ábyrgð á þeim og að um fjölþáttaárás væri að ræða.
Fyrr í dag var greint frá því að þýskir rannsakendur teldu sig hafa borið kennsl á tvo menn sem grunaðir eru um að hafa reynt fjölþáttaárás á Leipzig/Halle-flugvellinum.
Kaja Kallas, sem stýrir utanríkismálum ESB, sagði í morgun að árásartilraunin í Þýskalandi bæri öll einkenni ríkisstyrktrar hryðjuverkastarfsemi. Umfangsmiklar refsiaðgerðir væru til skoðunar en utanríkisráðherrar ESB eru saman komnir á Írlandi.
Hún sagði rússneska sendiherra víða um Evrópu hafa verið kallaða á teppið vegna atviksins í þýskalandi og annarra mála.