Þátttakendur í viðhorfahópi Gallup voru spurðir í nýjustu könnuninni hversu jákvæðir eða neikvæðir þeir væru gagnvart því að Dagur B. Eggertsson yrði næsti varaformaður Samfylkingarinnar.
„Það er einhver annar en ég að kanna það,“ segir Dagur í samtali við fréttastofu.
„Verða aðrir en ég að bjóða sig fram til varaformanns. Er búinn með minn sprett í því.“
Dagur gegndi embætti varaformanns árin 2009 til 2013 þegar Jóhanna Sigurðardóttir var formaður en sagði síðan skilið við það. Hann var síðan kjörinn borgarstjóri ári síðar en var kjörinn þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður í Alþingiskosningunum 2024.
Guðmundur Árni Stefánsson, fyrrverandi bæjarfulltrúi Hafnarfjarðar, var sjálfkjörinn varaformaður á landsfundi Samfylkingarinnar árið 2025. Í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum missti Samfylkingin tvo fulltrúa og tilkynnti Guðmundur Árni að hann væri hættur í pólitík og sagði því sömuleiðis af sér sem varaformaður.