Breyta þarf lögum ef stjórnvöld hyggjast gefa út seðilinn, þar sem þau kveða á um að aðeins látnir einstaklingar geti prýtt gjaldmiðilinn.
Trump hefur einnig þrýst á að fá andlitsmynd sína á eins dollara mynt og þá verður undirskrift hans sett á alla seðla síðar á þessu ári.
Eins og þekkt er orðið virðist forsetinn afar upptekinn af því að tryggja arfleifð sína en hann hefur verið iðinn við að koma nafni sínu og ásýnd á byggingar og ýmis konar útgefið efni, auk þess að gylla sem flest í nærumhverfi sínu.
„Mér finnst það ekki óviðeigandi að manneskjan sem nú er forseti Bandaríkjanna prýði 250 ára afmælisseðilinn,“ sagði Bessent í gær.
Ákvörðunin hefur hins vegar þegar verið gagnrýnd af Demókrötum og þykir ekki líkleg til að auka á vinsældir Trump.
„Ef þetta Hvíta húss eyddi bara helmingi þeirrar orku sem hún ver í að koma til móts við egó forsetans í að lækka útgjöld, þá þyrftu bandarískar fjölskyldur ekki að nota þennan 250 dollara seðil til að geta fyllt á bílinn sinn,“ sagði Mark Warner, öldungadeildarþingmaður frá Virginíu.