Stjórnvöld í Japan hyggjast endurnýja allt að 14 kjarnaofna sem komnir eru til ára sinna fyrir 2050. Kjarnorka hefur notið vaxandi hylli meðal ráðamanna í Tókýó á síðustu misserum. Þeir segja að með raforkuframleiðslu í kjarnorkuverum geti landið orðið minna háð jarðefnaeldsneyti, náð kolefnishlutleysi fyrir 2050 og mætt aukinni eftirspurn eftir rafmagni, sem er ekki síst til komin vegna gervigreindar.
Samkvæmt áætlun iðnaðarráðuneytis Japans standa vonir til að fimm kjarnaofnar verði endurnýjaðir fyrir 2040 og 14 fyrir 2050. Þetta er í fyrsta sinn sem stjórnvöld leggja fram skilgreint markmið um endurnýjun kjarnaofna.
Eftir kjarnorkuslysið í Fukushima var öllum kjarnorkuverum landsins lokað. Flóðbylgja skall á Fukushima-kjarnorkuverinu árið 2011 og gereyðilagði þrjá kjarnaofna þess. Geislavirk efni sluppu út í andrúmsloftið í slysinu sem var það alvarlegasta frá Tsjernobyl-slysinu í Úkraínu 1986.
Á síðustu árum hefur starfsemi hafist að nýju í nokkrum kjarnorkuverum landsins.