Æðstiklerkur Írans segist ætla að kenna Bandaríkjunum „ógleymanlega lexíu“. Þetta gerir hann í skriflegri yfirlýsingu. Ríkin hafa skipst á að gera árásir undanfarna viku.
Árásir héldu áfram á milli herja Írans og Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum í nótt. Vika er liðin frá því að Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði vopnahléinu milli ríkjanna lokið af sinni hálfu en síðan hafa ríkin gert árásir á víxl.
Khamenei segir undirskrift Trumps einskis virði
Íranar segja að þrír hafi verið drepnir og að átta séu særðir eftir árásir bandaríska hersins í Suður-Íran í nótt. Samkvæmt bandaríska hernum var árásunum beint að eftirlitskerfum, hernaðarlegum innviðum og vopnabirgðageymslum í Íran.
Íranski herinn segist hafa svarað með árásum á bandamenn Bandaríkjanna, meðal annars í Kúveit og í Jórdaníu.
Motjaba Khamenei, æðstiklerkur Írans, hefur sent frá sér skriflega yfirlýsingu vegna árásanna. Hann segir aðgerðir Bandaríkjanna þvert á það sem fram kemur í viljayfirlýsingu milli ríkjanna um að binda enda á átökin í Mið-Austurlöndum. Þær sýni að undirskrift Bandaríkjaforseta sé einskis virði.
Motjaba tók við af föður sínum sem æðstiklerkur Írans fyrr á þessu ári. Faðir hans Ali Khamenei var ráðinn af dögum í árásum Bandaríkjanna og Ísraels 28. febrúar. Motjaba særðist í árásum Bandaríkjamanna í febrúar og hefur ekki sést opinberlega síðan í mars.