Adam Ingi Benediktsson, markmaður AB í Danmörku, hélt hreinu í 3:0 sigri liðsins á Thisted í lokaumferð dönsku C-deildarinnar í fótbolta í dag.
Sigurinn tryggði liðinu deildarmeistaratitilinn en liðið spilar því í B-deild á næstu leiktíð. Liðið er með 71 stig, átta stigum frá Vendsyssel FF sem er í öðru sæti.
Fannar Berg Gunnólfsson er þjálfari AB en hann tók við liðinu af Jóhannesi Karli en Fannar hafði verið aðstoðarmaður hans.