Aðalsteinn Einarsson hefur verið ráðinn nýr sölustjóri hjá Eirvík. Síðastliðin 8 ár hefur hann starfað hjá fyrirtækinu sem sölufulltrúi.
Eirvík er fjölskyldufyrirtæki, stofnað árið 1994, sem býður upp á sérhæfða þekkingu í sölu á heimilistækjum og innréttingum.
Fram kemur í tilkynningu að félagið hafi nýlega sameinast fyrirtækinu ProGastro, sem hefur verið þekkt fyrir fjölbreytt vöruúrval sitt fyrir stóreldhús, fyrirtækjarekstur og heimili.
Víðtæk reynsla við sölustörf
Aðalsteinn hóf störf hjá Eirvík árið 2018 og hefur víðtæka reynslu af sölustörfum sem hann hefur brennandi áhuga á.
Hann segir það heiður að fá að vinna á svo góðum vinnustað í kringum gott fólk og að geta boðið viðskiptavinum upp á gæðavörur frá alls kyns birgjum, segir enn fremur í tilkynningunni.