„Aðalsteinn kemur til þess að aðstoða í málinu að hluta til því hann er náttúrulega mjög góður í því og sérfræðingur og að hluta til því ég þarf að sækja norrænan samráðsfund sáttasemjara í nokkra daga,“ segir Ástráður.
Fundur var haldinn í kjaradeilu FÍA og Icelandair í dag. Fundurinn hófst klukkan fjögur og lauk um sjö. Engin formleg niðurstaða náðist á fundinum og hefur nýr ekki verið boðaður. Ástráður telur að annar fundur verði boðaður á næstu dögum.
Fyrir helgi kynnti Icelandair heildstæðari nálgun á kjaramál flugmanna sem FÍA kynnti sér yfir helgina. Ekki liggur fyrir hver afstaða FÍA er gagnvart tillögum Icelandair.
Ástráður telur það ólíklegt að fundað verði í deilunni á meðan hann verður frá.