Aðalmeðferðin fer fram í Héraðsdómi Reykjaness og hafa sex heilir dagar verið teknir frá. Í ákærunni er Íris Helga sökuð um hótanir, ærumeiðingar, rangar sakargiftir, skjalafals og barnaverndarlagabrot á árunum 2022 til 2025.
Málið var þingfest um miðjan maí og neitaði Íris Helga allri sök. Hún lagði einnig fram kröfu um að réttarhöldin færu fram fyrir luktum dyrum en hafnaði dómari málsins þeirri kröfu.
Íris Helga er meðal annars ákærð fyrir að væna fólkið opinberlega um barnaníð, ljúga kynferðisbroti upp á þrjá skólabræður dóttur eins mannanna og fá mann sem hún var í slagtogi við til að maka saur á hurðarhúna heimilis og bíls eins mannanna. Þá hefur hún játað að hafa logið nauðgun upp á einn mannanna.
Karlmaður sætir einnig ákæru fyrir hlutdeild að umsáturseinelti gagnvart sambýlisfólki, meðal annars með því að hafa makað saur á hurðarhúna heimilis og bíls fólksins. Við þingfestinguna neitaði hann einnig sök en baðst jafnframt afsökunar á aðkomu sinni að málinu.
Þremur dögum eftir að lögreglustjórinn á Suðurnesjum gaf út ákæru á hendur Írisi Helgu var hún handtekin í tengslum við falska dánartilkynningu um mann í Morgunblaðinu.