Aðalmeðferð er hafin í máli Írisar Helgu Jónatansdóttur sem ákærð er fyrir umfangsmikið umsáturseinelti, skjalafals, rangar sakargiftir og ærumeiðandi aðdróttanir á árunum 2022 til 2025.
Íris Helga mætti í dómssal í Héraðsdómi Reykjaness rétt fyrir klukkan níu í morgun.
Hún er sögð hafa stundað umsáturseinelti gegn þremur karlmönnum, sambýliskonu eins þeirra og fjölskyldu hans.
Hún á meðal annars að hafa sakað menn opinberlega um barnaníð, ofbeldi og nauðgun. Þá er hún sökuð um að hafa komið að heimili eins mannsins með krukku sem í á að hafa verið fóstur sem hún hefði misst.
Íris Helga er einnig sökuð um barnaverndarlagabrot þar sem brot hennar eru einnig sögð hafa beinst að börnum tveggja mannanna.
Málið var þingfest í maí og neitaði Íris Helga allri sök. Hún fór einnig fram á að þinghald í málinu yrði lokað en ekki var orðið við þeirri beiðni.
Einn karlmaður er einnig ákærður í málinu fyrir að hafa aðstoðað Írisi Helgu.
Reiknað er með að aðalmeðferðin fari fram þangað til 10. nóvember og að hún taki því alls sex daga.