Talið er að að minnsta kosti 12.000 umframdauðsföll í Evrópu megi rekja til hitabylgjunnar sem gekk yfir hluta álfunnar í júní.
AFP fréttaveitan greindi tölfræðilegar upplýsingar um fjölda umframdauðsfalla dagana 22.-28. júní í Belgíu, Frakklandi, Þýskalandi, Lúxemborg, Hollandi, Spáni og Sviss. Um 10.000 umframdauðsföll voru skráð í löndunum þessa daga.
Þá voru um 2.200 umframdauðsföll í Englandi og Wales milli 18. og 28. júní einnig rakin til hitabylgjunnar. Tölur yfir fjölda látinna gætu átt eftir að hækka þegar sambærilegar upplýsingar frá fleiri löndum liggja fyrir.
Gagnrýnir ríkisstjórnir fyrir aðgerðaleysi
Hans Henri P. Kluge, svæðisstjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) í Evrópu, hefur varað við því að sumarið sé ekki yfirstaðið. „Þetta eru ekki náttúruhamfarir og þetta endurtekur sig á hverju ári vegna þess að of margar ríkisstjórnir eru enn að meðhöndla hita sem veðurfarslegt fyrirbæri frekar en heilsufarslegt neyðarástand,“ segir Kluge.
Kluge sagði að hægt væri að koma í veg fyrir flest dauðsföllin, leiðbeiningar hefðu verið birtar og staðreyndirnar tali sínu máli. „Ríkisstjórnir velja hvernig þær bregðast við næst og þetta sumar sýnir hvað er í húfi,“ segir Kluge.
Aðeins fleiri umframdauðsföll í Covid-faraldrinum
Evrópsk stofnun sem hefur eftirlit með dánartíðni, European Mortality Monitoring (EuroMOMO), hóf að taka saman upplýsingar um dánartíðni árið 2020. Samkvæmt stofnuninni hafa aldrei verið svo mörg umframdauðsföll verið skráð á umræddu tímabili.
Aðeins einu sinni áður hafa verið skráð fleiri dauðsföll í einni viku og það var í júlí 2022 þegar Covid-faraldurinn gekk yfir í mörgum Evrópulöndum.