Knattspyrnumaðurinn Solly March er á förum frá Brighton eftir 15 ára veru hjá félaginu.
March, sem er miðjumaður, lék yfir 300 leiki með Brighton en hann hefur verið mikið frá vegna meiðsla undanfarið ár.
Leikmaðurinn er 31 árs en hann kom til Brighton þegar hann var aðeins 16 ára gamall og átti sinn þátt í að koma liðinu upp í efstu deild og festa sig í sessi þar.