Íbúar í Alberta hafa kosið með yfirgnæfandi meirihluta að þeir vilji áfram vera hluti af Kanada. 76% íbúa kusu gegn því að haldin yrði bindandi þjóðaratkvæðagreiðsla um sjálfstæði frá Kanada.
Í Alberta búa um fimm milljónir en margir þeirra sem styðja aðskilnað segja að umhverfisstefna kanadísku ríkisstjórnarinnar hafi hamlað efnahagsvexti í ríkinu. Alberta á um 98% af heildarolíuforða Kanada.
Spár gerðu ráð fyrir þessari niðurstöðu en skoðanakannanir sýndu svipaða tölu, eða að meira en 76% íbúa væru á móti því að sækja um sjálfstæði.
Atkvæðagreiðslan var boðuð fyrr á þessu ári af Danielle Smith forsætisráðherra Alberta eftir að grasrótarhópur safnaði um 300 þúsund undirskriftum þar sem skorað var á stjórnvöld fylkisins að halda bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði frá Kanada.