Það var þétt setið í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag við þingfestingu máls sem tengist fjársvikum og peningaþvætti. Þetta kann að vera það sakamál Íslandssögunnar þar sem flestir eru ákærðir.
Tveir eru ákærðir fyrir að hagnýta sér kerfisvillu hjá Reiknistofu bankanna í október í fyrra til að svíkja 95 milljónir út úr Landsbankanum. Fjórir til viðbótar eru ákærðir fyrir að útvega annað fólk til að þvætta féð. 64 eru ákærð fyrir að þvætta féð.
Þeir tveir sem eru ákærðir fyrir stærstan hlut máls neituðu báðir sök, mótmæltu upptöku og bótakröfu og kröfðust sýknu af einkaréttarkröfu Landsbankans.
Hópur ákærðu er talinn sá fjölmennasti sem hefur verið við þingfestingu til þessa og þurfti því að skipta sakborningum upp í sjö hópa. Hópurinn var fjölbreyttur en fyrir dóminn hafa komið Íslendingar og erlendir ríkisborgarar með lögheimili hér, konur, karlar og fólk á breiðu aldursbili.
Margir huldu andlit sín en aðrir ekki og mikill kliður var á göngum dómstólsins við upphaf meðferðarinnar þar sem fólk leitaði að dómsal og ráðfærði sig við verjendur sína.
Túlka þurfti við hluta réttarhalda á alls sex tungumálum, meðal annars rússnesku, litáísku og ensku. Hlutur sakborninga er talinn misstór og flestir hafa neitað sök. Einhverjir hafa óskað eftir fresti til þess að taka afstöðu til sakargiftanna. Aðrir hafa játað sök að hluta, meðal annars af gáleysi.
Þá voru þrír sem ekki voru með verjanda og bauð dómari þeim að fresta því að gefa upp afstöðu sína til sakargiftanna og þeim skipaður verjandi í millitíðinni. Allir þáðu þeir það.
Þeir sem hafa fengið frest eða hafa játað mæta aftur fyrir dóm 11. nóvember en aðalmeðferð í tilfellum þeirra sem neita sök verður ákveðin síðar.