Á hverju ári fara um 70 þúsund skip til og frá Eystrasalti um Eyrarsund og Stórabelti, það er tæplega 200 skip á hverjum einasta degi. Þessu til viðbótar kemur svo fjöldi smábáta af ýmsu tagi og þá eru ótaldar skútur og trillur sem dóla á góðviðrisdögum, einkum á Eyrarsundi.
Fleiri stærri skip fara um Stórabelti en Eyrarsund, skýringin er sú að Stórabelti er mun dýpra. Öll skip sem fara um Stórabelti (milli Fjóns og Sjálands) sigla undir brúna, brúargólfið er í 70 metra hæð yfir sjávaryfirborðinu og hámarkshæð skipa má ekki fara yfir 65 metra.
Á Eyrarsundsbrúnni er þessu öðruvísi farið þar eru 57 metrar milli brúargólfs og sjávar. Flest stærri skip fara ekki undir brúna en sigla þess í stað framhjá brúnni nær Amager (um Drodgen) en þar undir eru göng. Skip sem fara þarna um mega ekki rista dýpra en 8 metra.
Mikið eftirlit
Um það bil 50 manns í Danmörku og Svíþjóð sinna vöktun með skipaferðum á Stórabelti og Eyrarsundi. Sundin eru vöktuð allan sólarhringinn og grannt fylgst með öllum skipaferðum með fullkomnum búnaði. Ef minnsti grunur vaknar um að ekki sé allt með felldu varðandi ferðir tiltekins skips er brugðist við. Stundum hefur hurð skollið nærri hælum og legið við slysum. Á undanförnum árum hefur nokkrum sinnum legið við árekstrum, skip hafa strandað eftir að hafa farið of nærri landi, komið hefur fyrir að skipstjórar hafa neitað að hlýða fyrirmælum og ætlað að sigla undir Eyrarsundsbrúna, þótt hæð skipsins sé meiri en heimilað er.
„Þá stefndi rússneskt flutningaskip í átt að Eyrarsundsbrúnni og svaraði ekki kalli vaktstöðva“
Fyrir nokkrum árum munaði minnstu að illa færi, þá stefndi rússneskt flutningaskip í átt að Eyrarsundsbrúnni og svaraði ekki kalli vaktstöðva. Þyrla frá danska flotanum var send í loftið og áhöfnin sá einn mann í brúnni á skipinu, sá virtist steinsofandi og rumskaði ekki. Að lokum voru tveir úr áhöfn þyrlunnar látnir síga niður og þeim tókst að vekja skipstjórann sem var ofurölvi og einn í brúnni, en samkvæmt reglum eiga ætíð að vera tveir í brúnni. Allt endaði þetta vel, nema fyrir skipstjórann (sem var Rússi), hann fékk háa sekt og missti skipstjórnarréttindin.
Stóraukin skipaumferð
Umferð flutningaskipa um Eyrarsund og Stórabelti hefur aukist jafnt og þétt á undanförnum árum. Leiðirnar um sundin tvö eru einu samgönguæðarnar, ef svo má að orði komast, til og frá Eystrasalti.
Rússnesk olíuflutningaskip, eða skip á vegum Rússa, hafa árum saman verið áberandi á sundunum en Rússar eru sem kunngt er stórtækir í olíuvinnslu. Í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu og viðskiptabanns á Rússa hafa olíuflutningar frá Rússlandi um Eystrasalt stóraukist. Rússar eru með stórar olíuvinnslustöðvar skammt frá St. Pétursborg við austurhluta Kirjálabotns (Finnska flóa) og flóinn því afar mikilvægur Rússum.
Um þessar mundir fara á degi hverjum tæplega 200 skip um Eyrarsund og Stórabelti, ýmist á leið inn eða út úr Eystrasalti. Þetta eru í flestum tilvikum engar smá fleytur, skipin iðulega um eða yfir 200 metra löng, enda er olíumagnið sem flutt er frá Rússlandi þessa leið ekkert smáræði, að jafnaði 4,9 milljónir tunna (hver tunna 159 lítrar) á hverjum degi. Olían sem fer um dönsku sundin er um það bil 4,7 prósent af daglegri notkun olíu í heiminum, svipað magn og fer um Súesskurðinn.
Vaxandi áhyggjur
Eins og áður sagði er mikil skipaumferð um dönsku sundin. Skip á leið til Rússlands eru oftast galtóm en fara síðan fullhlaðin til baka. Þessir miklu olíuflutningar valda vissum áhyggjum, því ef illa fer getur tjón af völdum olíu sem fer í hafið orðið mikið.
Í viðtali við danska útvarpið, DR, sagði Jacob Clasen, aðstoðarframkvæmdastjóri dönsku útgerðarsamtakanna, hinn svokallaða skuggaflota Rússa eitt helsta áhyggjuefnið. Skuggaflotinn samanstendur af olíuflutningaskipum sem sigla undir fánum ýmissa landa, sem gerir Rússum kleift að sniðganga efnahagsþvinganir Evrópusambandsins.
Skuggaflotaskipin eru mörg hver gömul og ætti að vera búið að taka úr notkun (úrelda). Skipin eru iðulega skráð í löndum sem gera litlar, jafnvel engar, kröfur um ástand og skortir viðeigandi tryggingar. Yevgenie Golovchenko aðjunkt við Hafnarháskóla segir olíuflutninga um Eystrasalt skipta Rússa mjög miklu máli.
Hvað er til ráða varðandi skuggaflotann?
Þessa spurningu lagði fréttamaður dagblaðsins Politiken fyrir Jessicu Larsen, sérfræðing við dönsku rannsóknarstofnunina DIIS. Svar hennar var einfalt: ekki sérlega margt. Þótt Eyrarsund og Stórabelti tilheyri danskri landhelgi eru sundin alþjóðlegt hafsvæði og svo lengi sem ekkert gerist hafa dönsk yfirvöld ekki leyfi til að aðhafast neitt, án samþykkis yfirvalda í skráningarlandi skipsins. Ef óhapp verður, eða skip siglir án þjóðfána hafa yfirvöld heimild til að grípa til aðgerða.
Áðurnefndur Yevgenie Golovchenko sagði í viðtali við dagblaðið Politiken að Dönsk stjórnvöld eigi að setja strangari reglur um skipaeftirlit, líkt og Svíar og Bretar hafa gert. Politiken sendi dönsku siglingamálastofnuninni erindi þar sem spurt var hvers vegna ekki hefðu verið settar strangari reglur varðandi eftirlitið. Svar hafði ekki borist þegar Politiken birti umfjöllun sína fyrir nokkrum dögum.
Almenningur fylgist með skipaferðum
Peer Henrik Hansen safnvörður á Langalandi fylgist grannt með skipaferðum um syðsta hluta Stórabeltis (Langalandssund) og segir að áður fyrr hafi hann nánst verið sá eini á þessu svæði sem fylgdist með skipaferðum en nú sé það breytt. „Áður fylgdist fólk með fuglum, flugvélum og ferjunum, núna hefur bæst við nýr hópur áhugafólks, sá hópur fylgist með skipaferðum,“ sagði Peer Henrik Hansen.
Þetta kemur fram í skriflegu svari utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu. Samkvæmt útreikningi fréttastofu nemur meðaltal fjarveru utanrík...
Skólaár byrjar og endar. Næsta skólaár tekur við. Fyrir þann sem bíður eftir nauðsynlegri aðstoð getur þetta þýtt að enn eitt tækifærið líður hjá. Þeg...
Meintur nauðgari hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 19. október, en hann hafði verið í felum til að sleppa annars vegar undan ákæru fyrir kyn...
Yfirvöld í Suður-Kóreu ætla að senda bréf til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna þar sem kallað verður eftir því að ráðamenn í Norður-Kóreu biðjist afsöku...
Bransamiðillinn Hollywood Reporter greinir frá ráðningunni. Spennumyndin Hafið er svart (Dark Ocean á ensku) er framleidd af Glassriver en Baldvin Zop...
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segist ekki ætla að styðja þingsályktunartillögu formanna stjórnarandstöðuflokkanna um að draga formlega til ba...
Myndin er úr smiðju bandaríska sjónvarpsmannsins Nathan Fielder sem gert hefur garðinn frægan með sjónvarpsþáttunum Nathan For You og síðast The Rehea...
Night-time traffic restrictions are due to begin on the TF-1 this Sunday, 25th October, as the Tenerife Cabildo starts a six-month programme to resurf...
Skýrsla vinnuhóps sem Alma Möller heilbrigðisráðherra skipaði í ágúst 2025 var birt í dag. Markmið hópsins var að fjalla um fyrirkomulag heilbrigðisþj...
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, segir stofnunina hafa viljað halda Eggerti áfram. Vísir greindi frá ráðningu h...
Bransamiðillinn Deadline greinir frá tíðindunum. Stóri bróðir/Vigilant er samevrópskt samstarfsverkefni íslenska framleiðslufyrirtækisins ACT4, streym...
Þetta segir í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp þann 19. október og staðfestur af Landsrétti í gær. Í honum segir að í greinargerð ...
Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til Viðurkenninga FKA 2027. Atvinnulífið og almenningur eru hvött til að tilnefna konur sem hafa skarað fram úr, ...
Systir Matthew Perry sagði að hinn frægi þáttur Friends, þar sem persóna hans, Chandler, gengur að eiga Monicu, hafi verið fjölskyldu Perry bæði gleði...
Ekki er laust við að margir hafi hreinlega verið búnir að gleyma Sigurði Inga Jóhannssyni, fyrrverandi formanni Framsóknar. Ugglaust héldu margir að h...
Landsnet hefur tilkynnt landeigendum á fyrirhugaðri leið Holtavörðuheiðarlínu 1 að viðræður um bætur fyrir land hefjist að nýju á næstunni.Landsnet he...
Landsnet hefur tilkynnt landeigendum á fyrirhugaðri leið Holtavörðuheiðarlínu 1 að viðræður um bætur fyrir land hefjist að nýju á næstunni.Landsnet he...
Úkraínskur maður handtekinn í Þýskalandi grunaður um njósnir Alríkissaksóknari segir manninn hafa aflað upplýsinga um framleiðslu brynvarinn...
Landsréttur staðfesti í gær gæsluvarðhald til 16. nóvember yfir karlmanni sem er grunaður um nauðgun. Hann hefur játað sök að hluta. Illa hefur gengið...
Alvarlegir veikleikar fundust í PHP-forritunarmálinu sem er notað fyrir um sjötíu prósent vefsíðna heimsins. Vegna gallanna var fjölmörgum vefsíðum lo...
Sænsk yfirvöld rannsaka enn tilraunir hóps manns til þess að kaupa atkvæði í Dölunum í Norður-Svíþjóð í þingkosningunum sem fóru fram í síðasta mánuði...
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður Margrétar gerir málinu skil í Facebook færslu. Þar gerir hann skóflustungu að nýju fangelsi Stóra-Hrauni að umfjölluna...
Um níu milljón einnota frauðplastkassar, fullir af ferskum fiski og ís, eru á hverju ári fluttir út frá Íslandi, aðallega með flugi, til viðskiptavina...
Það sem Harry Bretaprins sér hvað mest eftir í lífinu er seinasta símtalið sem hann átti við móður sína, Díönu prinsessu, áður en hún lést í bílslysi ...
Engin staðfest innbrot hafa orðið vegna öryggisgallans í PHP-forritunarmálinu að sögn Antons Más Egilssonar, forstjóra netöryggisfyrirtækisins Syndis....
Every winter, the Canary Islands draw visitors from much further away than Manchester or Madrid. Canadians escaping frozen mornings and Americans chas...
Leigusali í Lundúnum segir að fyrirtæki sem útvegar breskum stjórnvöldum húsnæði fyrir hælisleitendur hafi boðið honum 4.500 pund í mánaðarleigu fyrir...
Áhrifavaldurinn Andrew Tate, sem er grunaður um kynferðisbrot, er að sögn lögmanns hans fárveikur í fangelsi. Biður hann fólk um að biðja fyrir Tate.B...
Elva Hrönn Hjartardóttir, fjáröflunarstýra hjá Amnesty International, er nýkomin frá París. Hún segir fréttir af borginni í ljósum logum gefa ranga my...
Þetta er meðal þess sem fram kemur í þremur nýjum skýrslum Ríkisendurskoðunar um stofnanakerfi ríkisins sem kynntar voru fyrir stjórnskipunar- og efti...
A man was rescued from an overturned car in Lanzarote yesterday afternoon (Wednesday) after firefighters used hydraulic tools to open the driver’s doo...
Ríkisstofnunum hefur fækkað um 18,7% frá því árið 2020 og telur Ríkisendurskoðun stjórnvöld hafa brugðist við að fullu við tveimur af fjórum tillögum ...
Þorsteini Má Baldvinssyni, fyrrverandi forstjóra Samherja, og lögmanni hans tókst ekki að sýna fram á að hann hefði orðið fyrir miska þó að persónuupp...
Íbúar í Grafarholti og Úlfarsárdal veltu því sennilega margir fyrir sér í gærkvöldi hvers vegna Gunnar Helgason, barnabókahöfundur og leikari, deildi ...
Captain Harry Brook becomes the first England batter to make a double century in a one-day international with a sensational 202 against Sri Lanka in R...
Formaður samtaka gegn gyðingaandúð gagnrýnir PFLP-fána og slagorð í Palestínugöngu í Reykjavík Fréttin22. október 2026InnlentLeave a Comment Hákon Jóh...
Kanadíski leikarinn Adam DiMarco, sem sló í gegn í annarri þáttaröð hinna vinsælu sjónvarpsþátta The White Lotus, hefur verið ráðinn í aðalhlutverk ný...
A five-year-old girl and two adults were taken to hospital after two cars collided on the TF-1 near Las Chafiras in southern Tenerife this morning (Th...
Lögmaðurinn og samfélagsrýnirinn Arnar Þór Jónsson fékk martröð í nótt sem hann óttast að verði að veruleika. Í færslu í hópnum Ísland – Þvert á flokk...
Lögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson segir fangelsið á Hólmsheiði vera mannfjandsamlega byggingu og er hann ekki bjartsýnn á að nýtt öryggisfangelsi sem...
Vinna við farþegasalinn við Þönglabakka er þegar hafin og á að ljúka 5. desember. Framkvæmdir við stöðina utandyra gætu hafist vorið 2027, en sú tímas...
Nei bjargaði Íslandi frá brennandi Evrópu Fréttin22. október 2026Evrópusambandið, Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar:...
Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar en hundruð íslenskra vefsíðna voru útsettar fyrir gallanum og lágu margir vefir niðri á tímabili í...