Að minnsta kosti 15 særðust í flugskeytaárás Rússa á Kyiv, höfuðborg Úkraínu, í nótt. Borgarstjóri Kyiv, Vitali Klitschko, greindi frá árásunum sem voru gerðar á fjölmarga staði í borginni, þar á meðal íbúðarhúsnæði og samgönguinnviði.
Þá særðust tveir í drónaárásum úkraínska hersins á Moskvu, höfuðborg Rússlands, í nótt.
Sergei Sobyanin borgarstjóri Moskvu sagði í færslu á samfélagsmiðlum að 630 drónum hefði verið flogið að Moskvu-héraði og þar af hefði 163 drónum verið beint að Moskvuborg. Flestir drónarnir voru eyðilagðir af loftvarnarkerfum.
Fréttin hefur verið uppfærð með nýjum upplýsingum um fjölda særðra í Kyiv.