Stundarfjórðungi eftir klukkan níu að morgni 21. október 1966 breyttist hefðbundinn föstudagur í martröð í smábænum Aberfan í Suður-Wales. Stór gjallhaugur, úrgangur frá kolanámu í nágrenninu, sem hafði verið hlaðinn uppi á fjallshlíð ofan við bæinn, gaf sig eftir miklar rigningar.
Yfir 100 þúsund rúmmetrar af fljótandi leðju steyptust niður fjallshlíðina á ógnarhraða og inn í bæinn. Leðjan lenti aðallega á barnaskóla bæjarins og íbúðarhúsum í nágrenninu. Síðasti skóladagurinn fyrir vetrarfrí var nýhafinn þegar slysið varð. 116 börn létust auk 28 fullorðinna.
Gerald Kirwan var nemandi í skólanum en lifði slysið af.
„Þetta var eins og jarðskjálfti. Ég hélt ekki að haugurinn hefði hrunið.“
Hann var fastur í eðjunni í skólastofu ásamt vini sínum sem lést. „Litli vinur minn var enn næst við hlið mér.“
Gaynor Madwick var einnig nemandi í barnaskólanum. Hún var á kafi í þykkri eðju þegar hún rankaði við sér.
„Brot og raftar úr loftinu ... Því klæðningin í loftinu á skólastofunni vegna eðjuflaumsins, hafði ýtt veggjunum sundur og þeir farið að brotna inn á við og þess vegna hafði loftið hrunið á börnin.“
Hægt var að koma í veg fyrir slysið
Sjö haugar voru í fjallshlíðunum fyrir ofan bæinn. Íbúar höfðu lengi viðrað áhyggjur af þeim og óttuðust að þeir gætu gefið sig.
Rannsóknarnefnd sem var sett á laggirnar eftir slysið komst að því að hægt var að koma í veg fyrir hörmungarnar. Hinir haugarnir voru fjarlægðir eftir áralanga baráttu íbúa.
Minningarathöfn var haldin í morgun þar sem konungsfjölskyldan var meðal gesta. Karl Bretakonungur sagði einstakt að vera með eftirlifendum og íbúum bæjarins á þessari stundu.
„Þegar þið minnist þess að sextíu ár eru liðin frá því sem var og verður dýpsti sorgardagur sem hugsast getur.“
Fjallað var um slysið í þáttaröðinni The Crown frá streymisveitunni Netflix.