Rúmlega helmingur flugmanna Icelandair sem tóku þátt í þreytukönnun Félags íslenskra atvinnuflugmanna segist hafa sofnað óviljandi við störf um borð á þriggja mánaða tímabili í sumar.
Könnunin var lögð fyrir alla flugmenn Icelandair í fyrri hluta ágúst. Alls svöruðu 508 flugmenn, eða tæplega 80% félagsmanna. Þar voru þeir spurðir um reynslu sína undanfarna þrjá mánuði. Niðurstöðurnar eru merktar trúnaðarmál en fréttastofa hefur þær undir höndum.
Af þeim sem svöruðu sögðust 286, eða 56%, hafa upplifað óviljandi svefn, þar á meðal örsvefn, við störf um borð. Þriðjungur allra svarenda sagði það hafa gerst oftar en einu sinni.
90% telja vinnuálag hafa neikvæð áhrif á flugöryggi
Níu af hverjum tíu svarendum töldu vinnuálag og vaktafyrirkomulag ósjálfbært með tilliti til þreytu. Sama hlutfall taldi það hafa neikvæð áhrif á flugöryggi.
Mikill munur reyndist á svörum flugmanna eftir flugvélaflotum. Þreyta sem bitnaði á árvekni í starfi mældist mest meðal flugmanna Boeing 737-flotans.
Þegar flugmenn telja að þreyta geti stefnt flugöryggi í hættu ber þeim að taka sig af flugi, eins og það er kallað. Í könnuninni kemur fram að þriðjungur treysti sér illa til þess að taka sig af flugi, hvort sem er í heimahöfn eða útstöð. Þetta telur FÍA einn alvarlegasta öryggisbrestinn.
Í samantekt FÍA segir að niðurstöðurnar lýsi flugrekstri þar sem óviðunandi öryggisáhætta sé orðin viðtekinn hluti af daglegum rekstri Icelandair. FÍA tekur fram að spurningarnar hafi verið hlutlausar og ekki vísað til kjaramála. Niðurstöðurnar hafi verið afhentar Icelandair. Samkvæmt FÍA dró Icelandair ekki í efa þá mynd sem könnunin gefur af þreytu og álagi. Félögin hyggist nú vinna að úrbótum og niðurstöðurnar verða jafnframt sendar Samgöngustofu.
Nánar verður fjallað um málið í Kastljósi í kvöld.