Alls bárust fjórar tilkynningar um hópuppsagnir í maí 2026, þar sem 370 starfsmönnum var sagt upp störfum. Frá þessu segir á vef Vinnumálastofnunar.
Flestir þeirra sem sagt var upp störfum störfuðu í gistiþjónustu, alls 270 starfsmenn.
26 starfsmönnum í störfum tengdum ferðaþjónustu var sagt upp störfum, 37 í sjávarútvegi og 37 í fjármálastarfsemi.
Uppsagnirnar koma flestar til framkvæmda á síðari helmingi þessa árs.