Fellibylurinn Noul náði landi í suðurhluta Kína í morgun. Honum hefur fylgt mikil rigning og kröftugur vindur. Þetta er þriðji fellibylurinn sem nær landi í Kína í þessum mánuði og sá kraftmesti það sem af er ári. Vindhraðinn við auga stormsins náði 45 metrum á sekúndu.
340 þúsund hafa þurft að yfirgefa heimili sín í Guandong-héraði í aðdraganda óveðursins.
Rauð regnviðvörun var gefin út í Hong Kong og íbúar varaðir við flóðum. Búið er að fella niður á fjórða hundrað flugferða til og frá alþjóðaflugvelli borgarinnar. Búist er við að starfsemin komist í samt lag þegar þar fer að kvölda.