Tæplega þrítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir morðið á Ann Widdecombe, samkvæmt frétt BBC.
Hinn ákærði, Joshua Kerry frá Rotherham í Suður-Yorkshire, mun koma fyrir dómara í Westminster Magistrates' Court á morgun, þriðjudag.
Breska hryðjuverkalögreglan segir rannsókn á því hvað bjó að baki árásinni, þar á meðal mögulegum pólitískum hvötum, vera í fullum gangi.
„Eins og í öllum morðrannsóknum er það lykilatriði í okkar vinnu að skilja „af hverju“ þetta gerðist,“ sagði Laurence Taylor, yfirmaður bresku hryðjuverkalögreglunnar, í yfirlýsingu sem lesin var upp fyrir utan höfuðstöðvar lögreglunnar, New Scotland Yard, og bætti við að rannsóknin væri sérstaklega yfirgripsmikil og flókin.
Kerry var upphaflega handtekinn 11. júlí, grunaður um morð. Hann var jafnframt handtekinn 13. júlí, grunaður um að hafa framið, undirbúið eða hvatt til hryðjuverka.
Widdecombe, sem var 78 ára, var fyrrverandi ráðherra Íhaldsflokksins og talskona Reform UK. Hún fannst látin fimmtudaginn 9. júlí á heimili sínu í Haytor í Devon, en hún hafði hlotið alvarlega áverka.