Portúgalska hitametið fyrir maímánuð, 40,0 gráður í maí 2001, féll á miðvikudaginn þegar hiti mældist 40,3 gráður í bænum Mora og hefur veðurstofa landsins spáð hita um og yfir 35 gráður í dag en í kjölfar þess er spáð kólnandi veðri og reiknað með að hitastig fari undir 30 gráður á þriðjudaginn.
Í Frakklandi reyna yfirvöld nú með öllum ráðum að aðstoða almenning við að komast gegnum heita daga auk þess að draga úr hættu á skógareldum eftir megni en þar í landi lagði ítalska tennisstjarnan Jannik Sinner árar í bát á Opna franska meistaramótinu í tennis þegar hitinn bar hann ofurliði.
Rauð viðvörun í Róm
Í heimalandi stjörnunnar hefur rauð viðvörun verið gefin út í höfuðborginni Róm vegna hitans sem mestur varð 32 gráður í gær.
Enn fremur hafa skólar lagt kennslu niður vegna hitabylgjunnar, þar á meðal grunnskóli í Souston í Landes-héraðinu þar sem hitastig innandyra mældist 53 gráður fyrr í vikunni eftir því sem franskir fjölmiðlar greindu frá.