Hin 15 ára gamla Emilía Eyva Thygesen úr Víkingi fagnaði sigri á ITF J60-mótinu í tennis í Ystad í Svíþjóð um helgina.
Þetta er í fyrsta sinn sem Emilía fagnar sigri á ITF-móti í einliðaleik í tennis og jafnframt í fyrsta sinn sem íslensk stúlka fagnar sigri á ITF-unglingamóti í einliðaleik.
Emilía lagði Hedvig Turesson að velli í úrslitaleiknum, 2:1, en hún vann fyrsta settið 6:1, tapaði öðru settinu 6:2 og vann svo oddasettið eftir upphækkun, 7:5.