14 létust þegar sprengja sprakk í vegkanti hraðbrautar í Suðvestur-Kólumbíu í gær. Að minnsta kosti 38 eru særðir. Forseti Kólumbíu, Gustavo Petro, sagði að árásin væri runnin undan rifjum hryðjuverkamanna og eiturlyfjasmyglara. Hann sakaði Ivan Mordisco, eftirlýstan eiturlyfjakóng, um að bera ábyrgð á árásinni í færslu á X.
Tveir létust í annarri sprengjuárás í gær nærri herstöð í Cali, sem er þriðja stærsta borg landsins. FARC-skæruliðahreyfingin hafnaði friðarsamkomulagi við ríkisstjórnina 2016 og hluti skæruliðanna hefur markvisst reynt að trufla friðarviðræður við Petro.
Öryggisástand í landinu er eitt helsta málefnið í forsetakosningunum sem verða 31. maí. Petro býður sig ekki fram í ár. Vinstrisinnaður öldungadeildarþingmaður, Ivan Cepeda, er með forskot samkvæmt könnunum. Hann er einn af lykilmönnum að baki umdeildri stefnu Petro um að semja við skæruliðahópa.
Fast á hæla Cepeda eru tveir hægri sinnaðir frambjóðendur, Abelardo de la Espriella og Paloma Valencia. Allir þrír forsetaframbjóðendurnir hafa fengið líflátshótanir og heyja kosningabaráttu sína undir strangri öryggisgæslu.