„Ég dansa meira að segja í draumum mínum,“ segir hin 100 ára gamla Evelyn Cordero sem opnaði dansskóla sinn árið 1994 en hóf sjálf dansnám aðeins fjögurra ára gömul.
Þrátt fyrir að hafa náð 100 ára aldri hefur hún engin áform um að leggja ballettskóna á hilluna enn sem komið er.
Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá Cordero leiðrétta líkamsstöðu ballettnemenda sinna á meðan hún styður sig við staf eða ballettslá.