Nemendur víða í Danmörku tóku sér frí í skólanum í dag til að mótmæla skertum styrkjum til náms sem stjórnvöld fyrirhuga.
Margir tóku rútu til Kaupmannahafnar þar sem var skipulögð mótmælaganga frá Ráðhústorginu að Kristjánsborgarhöll, en að auki voru mótmæli á öðrum stöðum í Danmörku og á sumum stöðum lokuðu mótmælendur fyrir aðgang að skólum. Talið er að um 10 þúsund manns hafi mætt á mótmælin í Kaupmannahöfn.
Breytingin sem verið er að mótmæla felur í sér að nemendur sem búa í foreldrahúsum fá ekki lengur námsstyrk ef foreldrar þeirra eru með meira en 710.077 danskar krónur í árstekjur fyrir skatt. Þetta eru um 13 milljónir íslenskra króna. Þá er styrkurinn skertur ef tekjurnar eru á milli 419.589 króna og 710.077 króna. Lægri upphæðin jafngildir um 7,7 milljónum íslenskra króna.
Að auki þurfa útskriftarnemendur að hafa unnið að meðaltali fjórar klukkustundir á viku í 18 af síðustu 24 mánuðum náms síns til að eiga rétt á dagpeningum fyrir útskriftarnema að námi loknu.
Þetta hefur áhrif á um 80 þúsund nemendur sem flestir eru á framhaldsskólaaldri, 18-19 ára.
Rök nemendanna sem eru að mótmæla eru að styrkirnir gefi nemendum svigrúm til að einbeita sér að náminu eða greiða kostnað tengdan náminu. Þá sé nám full vinna og því óeðlilegt að gera kröfu um vinnu með því.
Eins og staðan er núna er þingmeirihluti fyrir þessum breytingum. Einn stjórnarflokkanna, Sósíalíski þjóðarflokkurinn, hafði lýst andstöðu við þær en hefur nú skipt um skoðun. Rökin eru að það þurfi að gera málamiðlanir í stjórnarsamstarfi.